Heimskringla/Ólafs saga helga/50
Þá réðu til uppgöngu menn Ólafs konungs. Var þá merkið upp borið á það skip er næst var jarlsskipi en konungur sjálfur fylgdi fram merkinu.
Svo segir Sighvatur:
- Stöng óð gyllt, þar er gengum,
- Göndlar serks, und merkjum,
- gnýs, fyr göfgum ræsi,
- greiðendr, á skip reiðir.
- Þági var sem þessum
- þengils á jó strengjar
- mjöð fyr málma kveðju
- mær heiðþegum bæri.
Þar var snörp orusta og féllu mjög Sveins menn en sumir hljópu þá fyrir borð.
Svo segir Sighvatur:
- Vér drifum hvatt, þar er heyra
- hátt vopnabrak knátti,
- rönd klufu roðnir brandar,
- reiðir upp á skeiðar,
- en fyr borð, þar er börðust,
- búin fengust skip, gengu,
- nár flaut út við eyri
- ófár, bændr sárir.
Og enn þetta:
- Öld vann ossa skjöldu,
- auðsætt var það, rauða,
- hljóms, þá er hvítir komu,
- hringmiðlendum, þingað.
- Þar hykk ungan gram göngu,
- gunnsylgs, er vér fylgdum,
- blóðs fékk svör, þar er slæðust
- sverð, upp í skip gerðu.
Þá tók að snúa mannfallinu upp á lið jarls. Sóttu þá konungsmenn að jarlsskipi og var við sjálft að þeir mundu upp ganga á skipið. En er jarl sá í hvert óefni komið var þá hét hann á frambyggja að þeir skyldu höggva tengslin og leysa skipin út. Þeir gerðu svo. Þá færðu konungsmenn stafnljá á skeiðarkylfuna og héldu þeim. Þá mælti jarl að stafnbúar skyldu af höggva kylfuna. Svo gerðu þeir.
Svo segir Sighvatur:
- Sjálfr bað svartar kylfur
- Sveinn harðlega skeina,
- nær var áðr í óra
- auðvon róið honum,
- þá er til góðs, enn gjóði
- gert fengust hræ svörtum
- Yggs, lét her um höggvið
- hrafni skeiðar stafna.
Einar þambarskelfir hafði sitt skip lagt á annað borð jarlsskipi. Köstuðu þeir þá akkeri í framstafn á jarlsskipi og fluttust þá svo allir samt út á fjörðinn. Eftir það flýði allt lið jarls og reri út á fjörðinn.
Bersi Skáld-Torfuson var í fyrirrúmi á skipi Sveins jarls. En er skipið leið fram frá flotanum þá segir Ólafur konungur hátt er hann kenndi Bersa, því að hann var auðkenndur, hverjum manni vænni og búinn forkunnarvel að vopnum og klæðum: „Farið heilir Bersi.“
Hann segir: „Verið heilir konungur.“
Svo segir Bersi í flokki þeim er hann orti þá er hann kom á vald Ólafs konungs og sat í fjötrum:
- Hróðrs baðstu heilan líða
- hagkennanda þenna,
- en snarræki slíku
- svarað unnum vér gunnar.
- Orð seldum þau, elda
- úthauðrs boða, trauðir
- knarrar hafts, sem eg keypti
- kynstórs, að við brynju.
- Sveins raunir hef eg sénar
- snart rekninga bjartar
- þar er svaltungur sungu,
- saman fórum vér, stórar,
- Elgs mun eg eigi fylgja
- út hríðboða síðan
- hests að hverjum kosti
- hranna, dýrra manni.
- Krýp eg eigi svo sveigir
- sára linns í ári,
- búum ólítinn Áta
- öndur þér til handa,
- að eg herstefnir, hafni,
- heiðmildr, eða eg þá leiðumk,
- ungr kunni eg þar þröngvi
- þínn, hollvini mína.