Heimskringla/Hákonar saga Aðalsteinsfóstra/27
Hákon konungur tók þar skip þau er uppi hafði fjarað er átt höfðu Eiríkssynir og lét draga á land upp. Þar lét Hákon konungur leggja Egil ullserk í skip og með honum alla þá menn er af þeirra liði höfðu fallið, lét bera þar að jörð og grjót. Hákon konungur lét og fleiri skip upp setja og bera á valinn og sér þá hauga enn fyrir sunnan Fræðarberg.
Eyvindur skáldaspillir orti vísu þessa þá er Glúmur Geirason hældist í sinni vísu um fall Hákonar konungs:
- Fyrr rauð Fenris varra
- flugvarr konungr sparra,
- málmhríðar svall meiðum
- móðr, í Gamla blóði,
- þá er óstirfinn arfa
- Eiríks of rak, geira
- nú tregr gæti-Gauta
- grams fall, á sjá alla.
Hávir bautasteinar standa hjá haugi Egils ullserks.