Heimskringla/Magnússona saga/10
Um sumarið sigldi Sigurður konungur út um Grikklandshaf til Jórsalalands, fór síðan út til Jórsalaborgar og hitti þar Baldvina Jórsalakonung. Baldvini konungur fagnaði Sigurði konungi forkunnarvel og reið með honum út til árinnar Jórdanar og aftur til Jórsalaborgar.
Svo segir Einar Skúlason:
- Húf lét hilmir svífa
- hafkaldan, lof skaldi
- esat um allvalds risnu
- einfalt, í Grikksalti,
- áðr við einkar breiða
- úlfnestir skip festi,
- öld beið öll með stilli,
- Akrsborg, feginsmorgun.
- Get eg þess er gramr fór vitja,
- glyggs, Jórsala byggðar,
- meðr vitut öðling æðra,
- ógnblíðr, und sal víðum,
- og leyghati laugast,
- leyft ráð var það, náði
- hauka fróns í hreinu
- hvatr Jórdanar vatni.
Sigurður konungur dvaldist mjög lengi á Jórsalalandi um haustið og öndurðan vetur.