„Blaðsíða:Íslensk Söngbók.djvu/31“: Munur á milli breytinga

Frayae (spjall | framlög)
→‎Ekki villulesnar síður: Ný síða: 19. Minni íslands. Lag: Þú söguríka Svíabygð. 1. Þú gamla, mæra móðurgrund, Vér minnumst þín á gleðistund, Þú kynsælt kappaland, Sem fannahjálm á höfði ber...
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. júlí 2018 kl. 14:07

Þessi síða hefur ekki verið prófarkalesin

17

19. Minni íslands. Lag: Þú söguríka Svíabygð. 1. Þú gamla, mæra móðurgrund, Vér minnumst þín á gleðistund, Þú kynsælt kappaland, Sem fannahjálm á höfði ber, Og heitan eld í brjósti þér, Úr silfurskærum •elfum er Þitt ítra mittisband. 2. Þú móðurfold, vér minnumst þín Á meðan drott- ins röðull skín Á hvíta jökulinn. Að vinna alt, sem ork- um vér, Vort ættarland, til heiðurs þér, Það fagra tak- rmark setji sér Hver sannur mögur þinn. Hannes S. Blöndal.

20. ísland. Þjóðlag. (J. H., V.) Á heimsenda köldum vor ey gnæfir ein í ysta norð- urs hafsauga bláu, Þar fóstraðist þjóð vor við elds og ísa mein Og áhrif af náttúrunni háu; Og hér hefir glansað vor gulltíðaröld, Og geymt hér hefir Saga sín fornu rúnaspjöld, Drykkjað þjóð með þrótt Á þrauta dimmri nótt; Ljúft oss land vort er, því lífsrót vor er hér ; Vor köllun, vor dáð Knýtt er f ast við þetta láð Svo kngi vér lífsins anda drögum. Steingrimur Thorsteinsspn.

21. ísland. Lag: Þú vorgyðja svífur. 1. Ó, sviptigna móðir, með silfurhár greitt, Þinn sól- igylti vanginn er fríður; þótt skaut þitt sé kalt þá er hjarta þitt heitt, Og hreinn er þinn faðmur og blíðun 2