R
Um góðan bæarbrag. Að góðar sögur sèu lesnar um vetrar vökur, til fróðleiks og dægradvalar. Síðlátt dagfar. Fáng til æfingar líkamans. Rækíng guðs orða. Einglafylgi og hjásneiðíng reymleika og vondra vætta.
48.
Víst er framsagðr vetrar-hagr,
að vista nægðum höfuð-þíng;
samt hinn ráðvandi bæar-bragr
bætir heimilið allt um kríng;
fræðibækr eg les og ljóð;
svo læri hjúin dæmin góð.
49.
Eg líð ei gems nè gárúngs hætti;
gamanið samt eg læt í tè,
og vil hvörr glaðr verða mætti
við skikkun, hóf og frómlyndi,
og svo í kroppinn komi' ei ryg,
karlfólkið stundum reyni sig.
50.
Gjarnan trúrækinn vil eg vera,
vinnufólkinu' eg held til þess;
ei má húslestr undan bera,
eðr að sýngja guðligt vers;
biblíu les eg fyrst og fremst;
fræða lærdómr úngum temst.
51.
Eins hvort vèr vökum eða sofum
andfælulaust og drauma-rótt,
bærinn er hreinn af vondum vofum,
við slíka siði dag og nótt;
þeir góðu einglar eru hjá,
öllum meinsemdum hrinda frá.