Höfundur:Kristján Jónsson fjallaskáld

Kristján Jónsson fjallaskáld
(1842–1869)

Kristján Jónsson fjallaskáld (20. júní 1842 – 9. apríl 1869) fæddist í Krossdal í Kelduhverfi og ólst upp í þeirri sveit og í Öxarfirði. Á árunum 1859-1863 var hann vinnumaður á Hólsfjöllum. Fór hann þá að birta kvæði eftir sig í blöðum, meðal annars Dettifoss, og var þá farið að kalla hann fjallaskáld. Kristján fór í Lærða skólann í Reykjavík 1864 en sagði sig úr honum 1868 og gerðist barnakennari í Vopnafirði þar sem hann dó árið eftir, aðeins tuttugu og sex ára að aldri. Bölmóður og vonleysi einkennir mörg ljóða Kristjáns eins og reyndar var algengt í ljóðum margra síðrómantískra skálda.

Verk breyta