Heimskringla/Haralds saga Sigurðarsonar/19
Síðan réðu þeir sér til skipa, Haraldur og Sveinn, og dróst þeim brátt her mikill. Og er lið það var búið þá sigla þeir austan til Danmerkur.
Svo segir Valgarður:
- Eik slöng und þér, yngvi
- ógnblíðr, í haf síðan,
- rétt var yðr um ætlað
- óðal, frá Svíþjóðu.
- Hýnd bar rif, þar er rennduð,
- rétt á stag, fyr slétta,
- skeið, en skelktu brúðir,
- Skáney, Dönum nánar.
Þeir lögðu fyrst herinum til Sjálands og herjuðu þar og brenndu víða þar. Síðan héldu þeir til Fjóns, gengu þar upp og herjuðu.
Svo segir Valgarður:
- Haraldr, gerva léstu herjað,
- hnyggr þú andskotum, tyggi,
- hvatt rann vargr að vitja
- valfalls, Selund alla.
- Gekk á Fjón, en fékkat,
- fjölmennr konungr, sjálfum,
- brast ríkula ristin
- rít, erfiði lítið.
- Brann í bý fyr sunnan
- bjartr eldr Hróiskeldu.
- Rönn lét ræsir nenninn
- reykvell ofan fella.
- Lágu landsmenn gnógir.
- Ló hel sumum frelsi.
- Drósk harmvesalt hyski
- hljótt í skóg á flótta.
- Dvaldi daprt um skilda,
- drifu þeir er eftir lifðu,
- ferð, en fengin urðu
- fögr sprund, Danir undan.
- Lás hélt líki drósar.
- Leið fyr yðr til skeiða,
- bitu fíkula fjötrar,
- fljóð mart, hörund bjartir.