Heimskringla/Ynglinga saga/16
Dómar hét sonur Dómalda er þar næst réð ríki. Hann réð lengi fyrir löndum og var þá góð árferð og friður um hans daga. Frá honum er ekki sagt annað en hann varð sóttdauður að Uppsölum og var færður á Fýrisvöllu og brenndur þar á árbakkanum og eru þar bautasteinar hans.
Svo segir Þjóðólfur:
- Og eg þess oft
- um yngva hreyr
- fróða menn
- um fregið hafðag,
- hvar Dómar
- á dynjanda
- bana Hálfs
- um borinn væri.
- Nú eg það veit
- að verkbitinn
- Fjölnis niðr
- við Fýri brann.