Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Óskastundin (2)
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Óskastundin
Óskastundin
Um óskastundir höfðu menn miklar sögur og söknuðu fræði að vita hvonar hún var á tímanum þó þeir fullyrtu að ein þeirra væri í hvörjum sólarhring. En til vissu um tilveru hennar var fært að Sæmundur fróði hafi boðið þernum sínum að óska hvors þær vildu; hafi þá ein óskað sér að eiga sjö sonu við honum: „Með þessari bæn óska ég mér alls góða að eiga sjö syni með Sæmundi fróða;“ og átti þessi bæn að fullkomnast og þeir að verða prestar sem hefðu allir í einu brunnið inni í kirkju Skálholt[s] og kirkjan líka. En þá átti sú er ekki hreppti óskina [að] segja:
- „Mörgum þókti málug ég,“
- mælti kerling skrýtileg;
- „þagað gat ég þó með sann
- þegar Skálholtskirkja brann
— og sjö prestar inni þar.“