Heimskringla/Haralds saga Sigurðarsonar/2
Eftir um vorið fengu þeir sér skipan og fóru um sumarið austur í Garðaríki á fund Jarisleifs konungs og voru þar um veturinn.
Svo segir Bölverkur:
- Mildingr, straukstu um mækis
- munn er lést af gunni.
- Holds vannst hrafn um fylldan
- hrás. Þaut vargr í ási.
- En gramr, né eg frá fremra
- friðskerði þér verða,
- austr varstu ár hið næsta,
- örðuglyndr, í Görðum.
Jarisleifur konungur tók vel við þeim Haraldi. Gerðist Haraldur þá höfðingi yfir landvarnarmönnum konungs, og annar Eilífur, sonur Rögnvalds jarls.
Svo segir Þjóðólfur:
- Eitt höfðust at,
- Eilífr þar er sat,
- höfðingjar tveir.
- Hamalt fylktu þeir.
- Austr-Vindum ók
- í öngvan krók.
- Vara Læsum léttr
- liðsmanna réttr.
Haraldur dvaldist í Garðaríki nokkura vetur og fór víða um Austurveg. Síðan byrjaði hann ferð sína út í Grikkland og hafði mikla sveit manna. Þá hélt hann til Miklagarðs.
Svo segir Bölverkur:
- Hart kníði svöl svartan
- snekkju brand fyr landi
- skúr, en skrautla báru
- skeiður brynjaðar reiði.
- Mætr hilmir sá málma
- Miklagarðs fyr barði.
- Mörg skriðu beit að borgar
- barmfögr hám armi.